Rúllugardínur

screen rúllugardínur

Screen rúllugardínur eru í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum og henta vel í stofur og skrifstofur eða önnur rými sem þarf að dempa sólargeisla en halda útsýni.

Við erum með nokkur gegnsægis stig í boði 1%, 3%, 5% og 10%. Algengustu efnin eru 3% og 5%.

rúllugardínur með myrkvunar efni

Einföld og hagkvæm lausn. Margir mismunandi litir og áferðir í boði. Fullkomnar í svefnherbergið og rými þar sem þörf er á að varna birtu inn. 

Rúllugardínur
Rúllugardínur

Ljósdempandi efni

Hentar mjög vel í stofur og önnur rými þar sem þörf er á að það sjáist annað hvort inn eða út á sama tíma og birtunni er hleypt inn. 

mynstur og áferðir

Við erum með mikið úrval á efnum með bæði áferðum og mynstrum. Nú er hægt að fá mjög fallegar rúllugardínur sem setja fallegan svip á herbergið og vel þess virði að koma og skoða.

Rúllugardínur

rafdrif

Við erum með bæði mótora með innbyggðum rafhlöðum og beintengda.

Kosturinn við mótor með innbyggðri rafhlöðu er að hann er snúrulaus og þarf því ekki að fara í framkvæmdir til að leggja að honum rafmagn.

Rúllugardínur

ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar eða tilboð

Þú getur sent okkur línu hér til hliðar eða hringt í 5196886. 

Þér er líka velkomið að kíkja til okkur í Dalbrekku 56, 200 Kópavogi.