Strimlagardínur

strimlagardínur

Strimlagardínur eru sérstaklega hentugar í stóra gólfsíða og breiða glugga. Hægt að fá strimla úr myrkvunarefni ef um svefnherbergisglugga er að ræða.

Stílhrein lausn

Það fer lítið fyrir strimlagardínum og hægt er að stjórna því hvernig þú hleypir birtunni inn. Þær geta líka nýst vel sem skilrúm í stórum rýmum ef þörf er á að hólfa rými niður annað slagið. Auðvelt er að draga strimlana eftir þar til gerðum brautum og lítið fer fyrir þeim þegar þeir eru ekki í notkun. 

Strimlagardínur
Strimlagardínur

Allskonar litir og áferðir

Við erum með gott úrval mismunandi strimla bæði hvað varðar liti og áferðir. Eins og sést hér til hliðar getur litur og áferð sett fallegan svip á rými og gefið herbergi aukinn karakter.

hafðu samband ef spurningar vakna eða óskað er  eftir tilboði

Þú getur sent okkur línu hér til hliðar eða hringt í 5196886.

Þér er líka velkomið að kíkja til okkur í Dalbrekku 56, 200 Kópavogi.